Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1 Bandaríska háskólagolfið: Slæmur endir hjá Haraldi Franklín á Old Waverly
Haraldur Franklín Magnús, GR og golflið Louisiana Lafayette luku keppni á Old Waverly Collegiate Championship mótinu, sem fram fór í West Point, Mississippi.
Mótið stóð dagana 6.-7. apríl og lauk í gær. Þátttakendur voru 84 frá 15 háskólum.
Haraldur Franklín lék samtals á 8 yfir pari, 224 höggum (71 73 80) og varð T-50. Hann átti slæman lokahring eftir annars ágæta byrjun, en heldur óvanalegt er að sjá Harald fá 6 skolla og 2 skramba á golfhring, sem hann þó tók tilbaka með 2 fuglum. Lokastaðan 8 yfir pari á lokahringnum, sem einnig var heildarniðurstaðan, en fyrir lokahringinn var Haraldur Franklín á samtals sléttu pari e. 2 hringi.
Haraldur Franklín lauk samt keppni á 3. besta heildarskori Louisiana Lafayette.
Lið Louisiana Lafayette varð í lokasætinu í liðakeppninni.
Til þess að sjá lokastöðuna á Old Waverly SMELLIÐ HÉR:
Næsta mót Haraldar og the Ragin Cajuns, golfliðs Louisiana Lafayette, er 19. apríl n.k.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
