Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2015 | 23:00

Afmæliskylfingur dagsins: Suzann Pettersen – 7. apríl 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Suzann Pettersen, en hún er fædd í Osló 7. apríl 1981 og því 34 ára í dag. Suzann er nr. 6 á Rolex-heimslista kvenna og þekktust fyrir að vera sá kvenkylfingur á LPGA, sem stundar mestu líkamsræktina. Suzann gerðist atvinnumaður í golfi árið 2000 og spilar í dag bæði á LPGA og LET. Hún hefir á ferli sínum unnið 21 titil þ.e.: 14 á LPGA, 7 á LET og síðan vann hún óopinbert mót með Natalie Gulbis og Christie Kerr, Wendy´s 3 Tour Challenge árið 2009.

Suzann hefir 6 sinnum (2002, 2003, 2005, 2007, 2009 og 2011) tekið þátt í Solheim Cup liði Evrópu og var lykilkona í sigri Evrópu í Killeen Castle 2011 og í Bandaríkjunum 2013.  Spurning hvað Suzann gerir á Solheim Cup í ár?

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Donna White, 7. apríl 1954 (61 árs); Gail Lee Hirata, 7. apríl 1956 (59 ára); Helen Wadsworth, 7. apríl 1964 (51 árs); Joe Durant, 7. apríl 1964 (51 árs); Borja Echart, 7. apríl 1988 (27 ára); Joseph Bramlett, 7. apríl 1988 (27 ára)…. og ….

Einar Jóhann Herbertsson
F. 7. apríl 1954 (61 árs)

Humarhöfnin Veitingahús

Kristine G Alexandria

Þórhallur Teitsson
F. 7. apríl 1949 (66 ára)

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is