Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Laetitia Beck (26/45)
Það voru 7 stúlkur sem deildu 18.-24. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014.
Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída.
Aðeins 20 stúlkur fengu fullan spilarétt á LPGA 2015 og því varð að fara fram bráðabani milli þessa 7 stúlkna og komust 3 áfram og fengu fullan spilarétt þ.e.: Laetitia Beck, Garrett Phillips og Karlin Beck, en hinar 4 fengu aðeins takmarkaðan spilarétt þ.e.: Julie Yang, Jacqui Concolino, Stephanie Meadow og Casey Grice (en þær 4 hafa þegar verið kynntar).
Laetitia Beck var ein af þeim 3 heppnu sem unnu bráðabanann og er með fullan spilarétt á LPGA 2015.
Beck lék eins og allar hinar sex á samtals 4 undir pari, 356 höggum ( 69 74 68 70 75).
Laetitia Beck (hebreska: לטיסיה בק) fæddist 5. febrúar 1992 í Antwerpen í Hollandi og er því 23 ára.
Hún er fyrsti ísraelski kylfingurinn til þess að keppa á LET. Í Ísrael býr hún í Caesarea.
Hún tók þátt í fyrsta móti sínu sem atvinnumaður á Opna breska kvenrisamótinu 2014, en það ár gerðist hún atvinnumaður í golfi.
Beck hefir sigrað The Israeli Open Golf Championship 5 sinnum, í fyrsta sinn þegar hún var 12 ára.
Hún vann einnig gullmedalíur í golfi bæði árin 2009 og 2013 í Maccabiah Games.
Beck lék í bandaríska háskólagolfinu með liði Duke University á árunum 2010–14, þar sem hún var í kvennagolfliði háskólans Blue Devils.
Árið 2011 var hún kjörin Atlantic Coast Conference nýliði ársins, árin 2013 og 2014 svar hún All-American, og á háskólaárum sínum var hún með meðahöggafjölda á hring upp á 73.58 (sem er 10. besti árangur í sögu skólans).
Beck sú fyrsta frá Ísarel til þess að keppa í móti á LPGA og í desember 2014 varð hún, eins og áður segir, sú fyrsta frá Ísrael til þess að komast á LPGA.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
