LPGA: Morgan Pressel og Mirim Lee efstar í hálfleik Kia Classic
Morgan Pressel jafnaði vallarmetið á golfvelli Aviara golfklúbbsins í gær; með glæsispili upp á 8 undir pari, 64 högg og leiðir nú í hálfleik (70 64) Kia Classic ásamt Mirim Lee frá Suður-Kóreu (65 69).
Báðar eru þær búnar að spila á samtals 10 undir pari, hvor og eiga 1 högg á Cristie Kerr (67 68) og nýliðann Alison Lee (69 66).
Fjórir kylfingar eru síðan T-5 á samtals 8 undir pari; þ.e. sigurvegari s.l. viku Hyo Joo Kim,Brittany Lang frá Bandaríkjunum, Maria Hernandez frá Spáni og Sakura Yokomine frá Japan.
Nr. 1 á Rolex heimslista kvenna, Lydia Ko er T-8 ásamt nr. 3 á kvenkylfingsheimslistanum, Stacy Lewis, og Alison Walshe, en þær þrjár hafa allar spilað á samtals 7 undir pari, hver.
Nr. 2 á heimslistanum heldur sér líka meðal þeirra efstu er á samtals 6 undir pari.
„Þetta var svo sannarlega stresslaust,“ sagði Pressel eftir hringinn. „Ég hitti næstum allar brautir og ég held að ég hafi hitt 16 eða 17 flatir á (tilskyldum höggafjölda) og var bara í fuglafæri á næstum hverri holu. Ég sló bara þangað sem ég vildi í dag. Það er svolítið síðan að ég hef verið svona örugg með hvert boltinn ætti að fara og svo var það ágætt að sveifla frjálslega þarna úti í dag og fá þær niðurstöður sem ég fékk.“
Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Kia Classic SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta 2. dags Kia Classic SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
