Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd: Björgvin Sigurbergsson Afmæliskylfingar dagsins: Jón Gunnar Gunnarsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir – 25. mars 2015
Afmæliskylfingar dagsins eru GK-ingarnir Jón Gunnar Gunnarsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK.
Jón Gunnar er fæddur 25. mars 1975 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Kona Jóns Gunnars er Gerður Sif Stefánsdóttir. Komast má á facebook síðu Jóns Gunnars til þess að óska honum til hamingju hér að neðan
Jón Gunnar Gunnarsson, GK (40 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!)
25. mars 1975 (40 ára)
Guðrún Brá er fædd 25. mars 1994 og á því 21 árs afmæli í dag!!! Guðrún Brá er í Golfklúbbnum Keili og stundar nú nám og spilar golf með golfliði Fresno State háskólans í Kaliforníu. Næst spilar Guðrún Brá 3. apríl n.k. í Mississippi.
Guðrún Brá var valin efnilegasta golfkona Íslands 2010.
Guðrún Brá varð bæði Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni í sínum aldursflokki 17-18 ára á Arionbankamótaröð unglinga 2011. Síðan unnu þau frænsdsystkinin Axel Bóasson og hún fyrsta mótið á Eimskipsmótaröðinni 2011.

Frændsystkinin og tveir bestu kylfingar landsins: Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir í Keili. Þau unnu 1. mótið styrktu af Erninum á Eimskipsmótaröðinni 2011. Mynd: gsimyndir.net
Guðrún Brá tók þátt í Duke of York mótinu 2011 og 2012 og stóð sig vel, bæði skiptin.
Guðrún Brá var í landsliðshóp íslenskra kylfinga 2012 og er í núverandi landsliðshóp 2015, völdum af Úlfari Jónssyni, landsliðsþjálfara og fór m.a.í æfingaferð í febrúar 2012 á Eagle Creek, í Flórída. Síðan tók Guðrún Brá þátt í Opna írska undir 18 ára í apríl 2012 og hafnaði í 9. sæti – sem er stórglæsilegur árangur!!!

Efri röð fv.: Anna Sólveig Snorradóttir, Hildur Rún Guðjónsdóttir og Saga Ísafold Arnarsdóttir. Neðri röð fv.: Högna Kristbjörg Knútsdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Sara Margrét Hinriksdóttir, Mynd: Keilir
Guðrún Brá endurtók leikinn frá 2011, þ.e. varð bæði Íslandsmeistari í höggleik á Unglingamótaröð Arion banka 2012 í Kiðjaberginu og Íslandsmeistari í holukeppni á Unglingamótaröð Arion banka í stúlknaflokki. Sjá má viðtal við hana sem Golf 1 tók eftir að hún varð Íslandsmeistari stúlkna í höggleik 2012 með því að SMELLA HÉR:
Guðrún Brá spilaði jafnframt á Eimskipsmótaröðinni 2012 og varð m.a. í 2. sæti í kvennaflokki á 1. móti mótaraðarinnar í Leirunni og var í forystu á 1. degi 2. mótsins, Egils Gull mótsins úti í Eyjum, en lauk keppni í 5. sæti í kvennaflokki. Guðrún Brá var í 4 manna úrslitum í Íslandsmótinu í holukeppni, þar sem klúbbfélagi hennar Signý Arnórsdóttir, GK vann. Hún hafnaði í 4. sæti í kvennaflokki á 6. og síðasta móti Eimskipsmótaraðarinnar 2012, Síma mótinu í Grafarholtinu.
Af öðru merkilegu á ferli Guðrúnar Brá frá árinu 2012 mætti geta að hún mætti föður sínum, Björgvini Sigurbergssyni í Einvíginu á Nesinu, sem fram fór 6. ágúst 2012. Eins sigraði Guðrún Brá í höggleikshluta Sigga & Timo mótsins hjá GK, en mótið fór fram 25. ágúst 2012, en hún lék Hvaleyrina á 2 yfir pari, 73 höggum.
Vorið sigraði Guðrún Brá í liðapúttkeppni Hraunkots ásamt „guttunum“ en einn af guttunum var bróðir hennar Helgi Snær!!! Sjá má frétt Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR:
Guðrún Brá (og frændi hennar Axel Bóasson) endurtóku síðan leikinn frá 2011 á Eimskipsmótaröðinni í árið 2013 og sigruðu í aftakaveðri upp á Skaga.
Af keppnisferðum Guðrúnar Brá erlendist 2013 er e.t.v. helst að geta þátttöku hennar í Ladies British Open Amateur Championship, þar sem hún stóð sig vel eins og alltaf. Af keppnisferðum Guðrúnar Brá erlendis í fyrra ber eflaust hæst þátttaka hennar í HM kvenna í Japan og eins og alltaf tók Guðrún Brá þátt á Eimskipsmótaröðinni 2014 og stóð sig vel!
Þeir sem vilja óska Guðrúnu Brá til hamingju með afmælið geta komist inn á Facebook síðu hennar hér fyrir neðan.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (21 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
25. mars 1994 (21 árs)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ingólfur Vestmann Ingólfsson, 25. mars 1952 (63 ára); Örvar Þór Kristjánsson, 25. mars 1977 (38 ára); Meredith Duncan, 25. mars 1980 (35 ára); Scott Stallings, 25. mars 1985 (30 ára); Stacey Bieber, 25. mars 1985 (30 ára); Henrik Norlander, 25. mars 1987 (28 ára); Guðni Oddur Jónsson, GS, 25. mars 1989 (26 ára).
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024





