Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 23. 2015 | 14:00

Henrik Stenson reiður út í starfsmenn á Arnold Palmer Inv.

Það var sænski kylfingurinn Henrik Stenson sem var í forystu fyrir lokahring Arnold Palmer Invitational.

Hann sá síðan 2 högga forystu sína verða að engu á 8 holu kafla; reyndar var hann þá kominn 2 höggum á eftir forystumanninn.

Stenson var öskureiður út í að hafa verið áminntur fyrir of hægan leik á seinni 9 á 4. hring.

Við blaðamenn sagði hann: „Ég er augljóslega svolítið vonsvikinn yfir útkomunni.“

Ég er mjög vonsvikinn með starfsmenn PGA Tour sem áminntu okkur vegna hægs leiks á 15. og byrjuðu að eltast við okkur lokaholurnar.“ (Stenson fékk skolla á 15. holu) – hefði það ekki gerst hefði hann getað knúið fram bráðabana við Matt Every, sem sigraði í mótinu.

Það er nógu erfitt að klára mót og spila lokaholurnar án þess að vera settur á klukkuna. Ég sé heldur ekki, í alvörunni ástæðuna fyrir því heldur.“