Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2015 | 14:15

Bjarki við keppni á Sardiníu

Bjarki Pétursson, afrekskylfingur í GB er sem stendur við keppni á Sardiníu.

Mótið sem Bjarki tekur þátt í ber nafnið: Campionato Internazionale D´Italia Maschile og fer fram á Circolo Golf Is Molas, á Sardiníu.  (Ísmola-vellinum 🙂

Mótið stendur 19.-21. mars 2015 og þátttakendur 132.

Á facebook síðu sína skrifaði Bjarki:

Erfiður dagur í dag, spilaði á Is molas vellinum í Sardiníu (Italíu).
Síðasta vika fór í að breyta nokkrum áhersluatriðum í leiknum mínum og hefur það gengið mjög vel. Aftur á móti náði ég því ekki út á völlinn í dag og niðurstaðann 76 (+4) högg.
Völlurinn sjalfur er að spilast erfiður og sýnir það sig þegar maður spilar illa en er samt ennþá inn í mótinu.
Niðurstaða dagsins því T66 sæti.
Mér til happs þá er nýr dagur á morgun og ný markmið.

Sjá má skor hvers dags með því að SMELLA HÉR: