Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Jacqui Concolino (24/45)
Það voru 7 stúlkur sem deildu 18.-24. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014.
Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída.
Aðeins 20 stúlkur fengu fullan spilarétt á LPGA 2015 og því varð að fara fram bráðabani milli þessa 7 stúlkna og komust 3 áfram og fengu fullan spilarétt þ.e.: Laetitia Beck, Garrett Phillips og Karlin Beck en hinar 4 fengu aðeins takmarkaðan spilarétt þ.e.: Julie Yang, Jacqui Concolino, Stephanie Meadow og Casey Grice.
Byrjað verður að kynna þær 4 óheppnu sem töpuðu í bráðabananum um fullan keppnisrétt á LPGA og eru því líkt og hinar 23, sem þegar hafa verið kynntar með takmarkaðan spilarétt á LPGA 2015.
Í dag verður Jacqui Concolino kynnt, en Casey Grice og Stephanie Meadow hafa þegar verið kynntar.
Jacqui lék á samtals 4 undir pari, 356 höggum (71 71 71 71 72) og hlaut $1,242 í verðlaunafé.
Jacqui Concolino fæddist 14. október 1987 og er því 27 ára. Hún er dóttir Doreen og Robert og á einn eldri bróður, Anthony.
Jacqui byrjaði 12 ára að spila golf og segir afa sinn hafa verið þann sem hafði mest áhrif á feril hennar.
Jacqui tók þátt í bandaríska háskólagolfinu; spilaði með liði Vanderbilt þar til hún útskrifaðist 2010 í skipulagsfræði.
Árið 2011 spilaði hún á minni mótaröð Suncoast Series þar sem hún sigraði 3 sinnum.
Árið 2012 var hún komin á LPGA en hún komst í gegn í Q-school í fyrstu tilraun sinni. Þetta ár 2012, spilaði hún líka á 2 mótum á Symetra Tour.
Meðal áhugamála Jacqui er að fara í hand- og fótsnyrtingu og horfa á Seinfeld.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
