Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Louise Stahle ——- 19. mars 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Louise Stahle. Stahle er fædd 19. mars 1985 og á því 30 ára stórafmæli í dag!!!

Stahle átti mjög farsælan áhugamannsferil.

Louise Stahle

Louise Stahle

Árið 2002 sigraði Stahle á French Open Amateur Championship. Hún var jafnframt í 2. sæti á Girls British Open 2002 og var í Junior Solheim Cup liði Evrópu sem tapaði það ár fyrir Bandaríkjamönnum. Árið eftir þ.e. 2003 var hún líka í Junior Solheim Cup liði Evrópu þegar mótið fór fram í Svíþjóð.

Árið 2004 vann Stahle the St Rule Trophy, the Beirut Café Ladies Trophy og the Telia Tour. Eins sigraði hún the Smyth Salver en hún var besti áhugamaðurinn sem þátt tók í Weetabix Women’s British Open og eins varð hún fyrsti Svíinn til þess að sigra í Ladies’ British Open Amateur Championship. Hún varð einnig fyrsti leikmaðurinn í 30 ár til þess að verja titilinn þegar hún sigraði aftur í mótinu árið 2005. Stahle var í sænska golflandsliðinu 2001–2005 og eins var hún hluti af liði Svía árið 2004 á Espirito Santo Trophy World Amateur Golf Team Championships en þar bar lið Svía sigur af hólmi í kvennaflokki.

Stahle var í bandaríska háskólagolfinu og spilaði með liði Arizona State University þar sem hún átti eitt besta nýliðaár í sögu skólans, en m.a. vann hún the Wildcat Invitational og PING/ASU Invitational. Stahle var útnefnd National Golf Coaches Association Eleanor Dudley Division I leikmaður ársins sem og nýliði ársins og var tilnefnd í All-American First team og Scholar team. Hún var Pac-10 Golfer of the Year og nýliði ársins, vann Pac-10 championship og var tilnefnd í All-Pac-10 first team. Stahle vann líka the GolfstatCup, sem veittur er þeim leikmanni sem hefir besta meðaltalsskor versus par eftir 20 leikin mót á tímabili.

Louise Stahle

Louise Stahle

Atvinnumennskan
Stahle gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 10 árum, þ.e. 2005 eftir að hafa náð T-8 árangri á Weetabix Women’s British Open en fyrsta mót sem hún lék í sem atvinnumaður var the Scandinavian TPC hosted by Annika í Svíþjóð. Hún fékk undanþágu til að spila á LPGA 2006 eftir að hafa orðið í 11. sæti í Q-school LPGA.

Á árunum 2006 til 2011 spilaði Stahle í 56 LPGA Tour mótum en besti árangurinn var 8. sætið árið 2009 á Sybase Classic. Árið 2006, tryggði Louise sér rétt til að spila á Ladies European Tour (LET) og spilaði í 49 mótum á þeirri mótaröð á árunum 2007 og 2012. Annað sætið í the Ladies Open of Portugal (2007) og the Ladies German Open (2008) er besti árangur hennar á LET.

Árið 2015, mun Stahle snúa aftur til keppni bæði á LPGA Tour Ladies European Tour eftir að hafa tekið þátt í lokaúrtökumótum beggja mótaraða með góðum árangri.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: John Henry Taylor, f. 19. mars 1871 – d. 10. febrúar 1963 ; Gay Robert Brewer, f. 19. mars 1932 – d. 31. ágúst 2007; Paul Devenport, 19. mars 1966 (49 ára); … og …

Guðrún Kristín Bachman, GR
F. 19. mars 1953 (62 ára)

Aðalheiður Jóhannsdóttir
F. 19. mars 1956 (59 ára)

Oliveira Rosa

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is