Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2015 | 11:00

Jordan Spieth stefnir á 1. sæti heimslistans!

Jordan Spieth hefir að markmiði að ná 1. sætinu af  Rory McIlroy á heimslistanum, eftir að hafa sigrað á Valspar Championship s.l. sunnudag.

Spieth sigraði í 3 manna bráðabana þegar hann setti niður u.þ.b. 9 metra glæsilegt fuglapútt á 3. holu bráðabanans, sem var par-3 17. holan á Copperhead oglfvellinum

Hann er aðeins einn af 4 kylfingum frá árinu 1940 sem tekist hefir að sigra tvívegis á PGA Tour fyrir 22 ára aldur.

Hinir eru:  Tiger Woods, Sergio Garcia og Robert Gamez.

En það er nr. 1 á heimslistanum sem er ofarlega á óskalistanum hjá Spieth.

„Mér finnst gaman að stúdera leikinn, vera vel að mér í sögu leiksins,“ sagði Spieth við blaðamann PGA Tour vefsíðunnar. „Það er virkilega gaman að setja nafn sitt við hlið nokkurra þessara (sem sigrað hafa).“

„En í augnablikinu er það sem ég er virkilega fókusaður á; Rory McIlroy og það að ná nr. 1 sætinu á heimslistanum. Það er það sem allir eru að eltast við.“