Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2015 | 20:45

Bandaríska háskólagolfið: Berglind og UNCG luku leik í 12. sæti á 3M Jaguar mótinu

Berglind Björnsdóttir, GR og golflið UNCG, tóku þátt í 3M Jaguar Intercollegiate mótinu, sem fram fór í Forest Hills golfklúbbnum í Augusta, Georgia.

Mótið stóð dagana 13.-15. mars 2015 og þátttakendur voru 74 frá 13 háskólum.

Berglind lék á samtals 24 yfir pari, 237 höggum (76 80 81) og lauk leik T-55.

Hún var á 3. besta heildarskori UNCG, sem varð í 12. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá  lokastöðuna á 3M Jaguar Intercollegiate SMELLIÐ HÉR:

Næsta mót Berglindar og UNGC verður 20. mars n.k. í Arizona.