Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU. Mynd: ETSU
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2015 | 08:19

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst hefur leik á General Hackler mótinu í dag

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, og golflið ETSU hefja leik á 2015 Myrtle Beach Golf Holiday General Hackler Championship.

Mótið stendur dagana 9.-10. mars 2015 og þátttakendur eru 82 frá 15 háskólum.

Leikið er í The Dunes Beach & Golf Club í Myrtle Beach, Suður-Karólínu.

Völlurinn sem leikinn er, er par-72, 7233 yarda (6614 metra).

Fylgjast má með gengi Guðmundar Ágúst og ETSU í mótinu með því að SMELLA HÉR: