Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2015 | 06:00

LET: Lydia Ko með nýtt vallarmet í Clearwater GC á 2. hring NZ Women´s Open – 61 högg!

Nr. 1 á heimslistanum Lydia Ko setti nýtt vallarmet á 2. hring sínum á New Zealands Women´s Open í Christchurch á Clearwater golfvellinum, þar sem mótið fer fram.

Lydia er á heimavelli og mikill fjöldi manns, sem fylgdist með hinu 17 ára undrabarni spila hring upp á 11 undir pari, 61 höggi.

Eftir 2. hringi er Ko á samtals 13 undir pari, og hefir tekið forystu.

Sem stendur er hún 3 höggum á undan Charley Hull frá Englandi. Julia Sergas frá Ítaliu og hin bandaríska Beth Allen deila 3. sætinu á 9 undir pari, 135 höggum, hvor.

Ko byrjaði hringinn ekki vel; var með skolla á 1. holu en náði því glæsilega tilbaka á 2. holu þar sem hún fékk örn.

Það sem eftir var hrings var hún með 10 fugla og 6 pör.  Þar með Ko hún fyrra vallarmet sem Mi Hyang Lee  átti á Clearwater golfvellinum upp á 63 högg um tvö högg þ.e. var á glæsilegu 61 höggi!!!

Aðeins í síðustu viku vann Ko Women’s Australian Open í Melbourne og er nú að reyna að vinna 2. titil sinn á NZ Women´s Open en hún varð í 2. sæti í fyrra.

Til þess að fylgjast með stöðunni á NZ Women´s Open SMELLIÐ HÉR: