Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 24. 2015 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Nicole Garcia (30/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 6.-34. sætinu.

Næst verður kynnt Nicole Garcia frá S-Afríku sem varð ein í 5. sætinu í Q-school.

Hún lék á samtals 9 undir pari, skorinu 351 höggi (72 75 70 67 67).

Nicole Garcia fæddist 10. desember 1990 og er því 24 ára.