Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2015 | 15:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Bonita Bredenhann (28/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 8.-34. sætinu.

Næst verða kynntar þær Kelsey Macdonnald frá Skotlandi og Bonita Bredenhann frá Namibíu, sem deildu 6.-7. sætinu.

Byrjað verður á því að kynna Bredenhann.

Hún lék á samtals 8 undir pari, skorinu 354 höggum (75 71 75 63 68).

Bonita komst fyrst á LET þ.e. Evrópumótaröð kvenna árið 2012 eftir keppni í úrtökumóti í Marokkó, þ.e. sömu völlum og keppt var á nú og því var hún öllum hnútum kunnug.

Golf 1 var með kynningu 2012 á Bonitu og má skoða hana með því að SMELLA HÉR: enda hefir ekki mikið breyst hjá Bredenhann, á 2 árum, nema hvað hún er komin með gífurlega keppnisreynslu, sem greinilega nýttist henni vel í úrtökumótinu!