Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2015 | 07:00

GR: Tom MacKenzie arkítekt hefir skilað drögum að uppbyggingu Grafarholtsvallar

Á heimasíðu GR má lesa eftirfarandi frétt:

Tom Mackenzie arkitekt hefur nú skilað drögum að uppbyggingu og greinagerð um ástandið á Grafarholtsvelli ásamt því hvað Golfklúbbi Reykjavíkur ber að gera til að rétta við og bæta gæði og vallaraðstæður. Umrædda skýrslu má nú finna […] hér neðar á síðunni. Skýrslan hefur nú verið þýdd yfir á íslensku.

Nú hafa félagsmenn okkar tíma til að kynna sér þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á vellinum á komandi árum. Samhliða þessu verður haldinn opinn félagsfundur á næst mánuðum þar sem farið verður yfir helstu þætti skýrslunnar.

Við skorum á allar félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur að kynna sér skýrslu Tom Mackenzie.

Frekari fréttir hvað þetta mál varðar verður kynnt síðar á heimasíðu félagsins.

Golfklúbbur Reykjavíkur

Smellið á tengilinn hér að neðan til þess að kynna ykkur skýrslu Tom Mackenzie.
Framtíðarskipulag Grafarholtsvallar