Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2015 | 13:30

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá T-16 í Kaliforníu e. fyrri dag

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og golflið Fresno State, The Bulldogs, taka þátt í The Gold Rush.

Mótsstaður er Old Ranch CC á Long Beach í Kaliforníu og stendur mótið 9.-10. febrúar 2014.

Þátttakendur eru 65 frá 11 háskólum.

Guðrún Brá lék fyrstu tvo hringina á samtals 7 yfir pari, 151 höggi (75 76) og er T-16, þ.e. deilir 16. sætinu með 5 öðrum.

Fylgjast má með gengi Guðrúnar Brá með því að SMELLA HÉR: en lokahringurinn verður leikinn í dag.