Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2015 | 14:00

GSÍ: 18 afrekskylfingar á heimleið eftir góða æfingaferð í Portúgal

Fjölmargir kylfingar eru nú í æfingarferð á vegum Golfsambands Íslands. Það eru þeir Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari og Birgir Leifur Hafþórsson aðstoðarlandsliðsþjálfari sem fara fyrir hópnum. Úlfar skrifaði nokkrar línur:

„Það fer vel um okkur hér á Morgado í Portúgal. Það er fínasta gluggaveður, sól en svalt. Við nýtum tímann vel og æfingar hafa gengið að óskum, allir í hópnum mjög einbeittir og áhugasamir. Áherslan er fyrst og fremst á leikæfingu og allt sem því fylgir, eins og undirbúning, markmiðasetningu, leikskipulag og hugarfar. Síðan setjum við Birgir Leifur upp keppnir á hverjum degi enda mikilvægt að þjálfa keppnisskapið.

Í dag hófst mót á vellinum sem er hluti af Jamega og Algarve Pro Tour atvinnumannamótaröðinni, og bauðst okkur óvænt tækifæri að skrá 6 keppendur í mótið, sem við nýttum okkur. Þeir Axel, Bjarki, Gísli, Kristján Þór, sem keppa í næstu viku á Portuguese Amateur,  auk Stefáns Þórs og Fannars Inga, sem einnig taka þátt í þessu móti. Um 75 keppendur eru skráðir til leiks þ.á.m. 8 kylfingar af Challenge túrnum og a.m.k. einn fyrrum sigurvegari á Evróputúrnum, Scott Drummond.

18 afrekskylfingar hafa verið við æfingar s.l. viku í Morgado, Portúgal en það eru:

Anna Sólveig Snorradóttir, GK

Arnór Snær Guðmundsson, GHD

Aron Snær Júlíusson, GKG

Axel Bóasson, GK

Bjarki Pétursson, GB

Fannar Ingi Steingrímsson, GHG

Gísli Sveinbergsson, GK

Henning Darri Þórðarson, GK

Kristján Benedikt Sveinsson, GA

Kristján Þór Einarsson, GM

Kristófer Orri Þórðarson, GKG

Ólafur Loftsson, NK

Stefán Þór Bogason, GR

Helga Kristín Einarsdóttir, NK

Karen Guðnadóttir, GS

Ólöf María Einarsdóttir, GHD

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR

Saga Traustadóttir, GR.

Hópurinn er væntanlegur heim á morgun mánudaginn 9. febrúar 2015.