Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2015 | 10:00

Hver er kylfingurinn: Brooks Koepka?

Brooks Koepka sigraði í gær í fyrsta sinn á PGA Tour móti þ.e. á Waste Management Phoenix Open, sem fram fór á TPC Scottsdale í Arizona.

En hver er kylfingurinn?

Koepka fæddist í Wellington, Flórída 3. maí 1990 og er því 24 ára. Hann spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Florida State University þar sem hann vann 3 sinnum einstaklingskeppnir og varð þrisvar All-American. Koepka spilaði á Opna bandaríska risamótinu 2012 meðan hann var enn áhugamaður,  en reyndar er besti árangur hans í risamótum glæsilegur T-4 árangur á Opna bandaríska 2014.

Eftir að hafa ekki náð niðurskurði á Opna bandaríska 2012 gerðist Koepka atvinnumaður í golfi og spilaði fyrst á Áskorendamótaröðinni  í Evrópu.  Hann sigraði fyrsta mót sitt strax í september 2012, þ.e. the Challenge de Catalunya.

Á árinu 2013 sigraði hann í annað sinn á Áskorendamótaröðinni þ.e. Montecchia Golf Open.  Koepka fylgdi þessu eftir með 3. sigri sínum á Áskorenda- mótaröðinni þ.e. Fred Olsen Challenge de España, þar sem hann setti núgildandi mótsmet, 260 högg (24 undir pari), og sigraði með methöggfjöldamun á næsta mann, þ.e. 10 högg.  Þremur vikum síðar vann hann á the Scottish Hydro Challenge. Með þessum 3 sigrum árið 2013 vann Koepka sér inn kortið sitt á Evrópumótaröðinni.

Deginum eftir að hann vann 3. sigur sinn á Áskorendamótaröðinni komst Koepka í gegnum úrtökumót og vann sér þátttökurétt á Opna breska 2013.  Koepka spilaði í fyrsta móti sínu á Evrópumótaröðinni, The Scottish Open, þar sem hann varð T-12.

Í fyrsta PGA Tour móti sínu var Koepka í forystu eftir 2. og 3. hring á Frys.com Open. Hann var T-3 í mótinu.  Á Opna bandaríska 2014 varð Koepka sem segir í 4. sæti og fyrir þann árangur hlaut hann keppnisrétt á PGA Tour fyrir keppnistímabilið 2014-2015 og fær nú í voru í fyrsta sinn að spila á Masters risamótinu.  Síðar um árið 2014 varð Koepka í 15. sæti á  PGA Championship.

Í árslok 2014 var Koepka tilnefndur til nýliðaverðlauna PGA Tour en hlaut evrópsku Sir Henry Cotton nýliðaverðlaunin á Everóputúrnum eftir að hann sigraði á Turkish Airlines Open og varð í 3. sæti á  Dubai Desert Classic og Omega European Masters, og í 9. sæti á  Alfred Dunhill Links Championship.

Nú er Koepka búinn að bæta við enn einni rósinni á glæsilegum ferli sínum fyrsta sigurinn á PGA Tour móti en hann kom 1. febrúar 2015 á Waste Management Phoenix Open s.s. segir að framan.