Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2015 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Louise Friberg (22/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 15.-34. sætinu.

Næst verða kynntar tvær stúlkur sem urðu í 13.-14. sætinu, en þær léku á samtals 3 undir pari. Þetta eru þær  Louise Friberg frá Svíþjóð og Emma Goddard, frá Englandi. Emma Goddard hefir þegar verið kynnt.

Sú sem kynnt verður í dag er sænska stúlkan Louise Friberg.  Hún var á samtals 3 yfir pari, skorinu 357 höggum (73 67 77 69 71)

Louise Friberg fæddist 24. júní 1980 í Helsingborg, Svíþjóð og er því 34 ára.

Friberg byrjaði í golfi 9 ára og segir foreldra sína og systur hafa haft mest áhrif á feril sinn.

Hún lék í bandaríska háskólagolfinu með golfliði University of Washington, þaðan sem hún útskrifaðist 2003 með gráðu í umhverfisrétti.

Friberg hefir verið í sænska golflandsliðinu frá 1996. Hún spilaði m.a. unglingamótaröð Svíþjóðar og varð Norðurlandameistari í golfi 1997.

Friberg var Friberg hlaut Second-Team All-Pac-10 honors árið 2002 og First-Team All-Pac-10 honors árið 2003 í University of Washington.

Árið 2005 spilaði hún á Telia Tour og hefir síðan þá spilað á einstökum mótum á LPGA.

Meðal áhugamála Friberg er lestur góðra bóka, bílar og að verja tíma með fjölskyldu og vinum.

Sjá má allt nánar um Friberg með því að SMELLA HÉR: