Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2015 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Mike Hill – 27. janúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Mike Hill.  Mike er fædur 27. janúar 1939 í Jackson, Michigan og á því 76 ára afmæli í dag.  Hann var í Arizona State University og gerðist atvinnumaður árið 1967. Hann átti ágætis feril á PGA Tour, þar sem hann vann þrívegis.  Stærsti árangur á lífsferli hans í golfinu kom þó eftir 50 ára aldrinum þegar hann sigraði 18 sinnum á  the Senior PGA Tour (nú Champions Tour) og var m.a. á toppi peningalista Seniors Tour 1991.  Mike er bróðir þekktari Hill-bróðursins,  Dave Hill (f. 20. maí 1937-d. 27. september 2011).

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mike Hill, 27. janúar 1939, 74 ára (bróðir Dave Hill 20. maí 1937);  Albert Woody Austin II, 27. janúar 1964 (51 ára),  Jonathan Currie Byrd, 27. janúar 1978 (37 ára); Bryce Molder, 27. janúar 1979 (36 ára)  ….. og…..

Dagmar Sigurðardóttir (48 ára)

Saumakona Handcrafts

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is