Solheim Cup stjarnan Charley Hull Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Charley Hull (18/45)
Það voru 6 stúlkur sem deildu 28.-33. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014.
Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída.
Ein þessara 6 var enska stúlkan Charley Hull .
Charley fæddist 20. mars 1996 í Kettering á Englandi. Hún byrjaði í golfi aðeins 5 ára og er félagi í Woburn golfklúbbnum í Kettering. Hún gerðist atvinnumaður 1. janúar 2013 aðeins 16 ára.
Charley er 1,65 að hæð, ljóshærð og bláeygð. Hún á ættir að rekja til Póllands s.s. kom fram í ítarlegu viðtali við hana sem Golf 1 birti um jólín 2013 (Sjá hér CHARLEY 1 CHARLEY 2 CHARLEY 3 CHARLEY 4 CHARLEY 5)
Charley átti býsna farsælan áhugamannaferil. Þegar Charley var 13-16 ára sigraði hún m.a. á eftirfarandi mótum: The Leveret, Hampshire Rose, Woburn GC Ladies Club Ch’ship (setti nýtt vallarmet 8 undir pari), ID Jones / Doherty Ch’ship Florida, Welsh Open meistari í höggleik, enskur meistari í höggleik , Harder Hall Invitational, Flórida.
Meðal hápunkta á ferli Charley var að sigra í fyrsta móti sínu á Evrópumótaröð kvenna (ens.: Ladies European Tour skammst. LET) en það gerði hún á Lalla Meryem mótinu í Marokkó 16. mars 2014.
Þar áður var meðal hápunkta Charley að fá að spila á Kraft Nabisco risamótinu, verða í 3. sæti á heimslista áhugamanna 2012, vera með í Curtis Cup liði Breta&Íra, 2012. Reyndar var það nú þá sem (golf)heimsathyglin fór að beinast að Charley því breska kvengolfsambandið ætlaði að banna henni að taka þátt þar sem hún þáði boð um að spila í Kraft Nabisco risamótinu, sem stangaðist á við æfingu fyrir Curtis Cup, sem Charley var búin að skrifa undir að hún ætlaði að mæta á. Margar eldri, reyndari golfgyðjur urðu til þess að hneykslast opinberlega á hvernig komið var fram við Charley, m.a. Laura Davies og Catriona Matthews og svo fór að Charley fékk að spila í Curtis Cup. Á þeim tímapunkti var Charley aðeins 15 ára. Sjá umfjöllun Golf 1 um Charley þá með því að smella hér CHARLEY 1 CHARLEY 2
Catriona varð síðan liðsfélagi Charley þegar hún var valin í Solheim Cup lið Evrópu 2013, þar sem Charley var yngst allra. Sjá umfjöllun Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR:
Loks mætti geta að meðal helstu áhugamála Charley er eftirfarandi: Kvikmyndir, Facebook, Twitter og að sósíalisera.
En nú bætist enn ein rósin við í glæstan feril hinnar ungu Charley; hún er komin með tánna inn á bestu kvenmótaröð heims: LPGA; komin með takmarkaðan keppnisrétt keppnistímabilið 2015.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
