Lottó myndbandið: „Ég lif´í draumi“
Íslensk Getspá hefur frá upphafi stutt dyggilega við íþróttahreyfinguna og öryrkja með sölu á LOTTÓ. Stuðningur þessi er afar mikilvægur enda skiptir hann íþróttahreyfinguna miklu máli og rennir stoðum undir rekstur hennar. Til að vekja athygli á málstaðnum þá hefur verið gert myndband með laginu „Ég lifi í draumi“ en textanum hefur þó verið breytt. Það er draumur íþróttamanna að ná árangri sinni grein og getur stuðningur þessi klárlega gert drauminn að veruleika.
Sjá má marga af okkar bestu íþróttamönnum í nýju hlutverki m.a leikur Íslandsmeisarinn í golfi Birgir Leifur Hafþórsson á fiðlu, Kolbeinn Sigþórsson sýnir ótúlega takta með rafmagnsgítarinn, Sara Björk Gunnarsdóttir leikur á hljómborð, landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson syngur bakraddir og svo mætti lengi telja.
Hugmyndin að gerð myndbandsins kviknaði í kjölfar nýjustu auglýsingaherferðar Lottó um stuðningsmanninn Leif Ottó sem mætir reglulega á íþróttakappleiki til að styðja sitt fólk.
Ég lifi í draumi hefur slegið í gegn í nýju Lottó auglýsingunum.
Hér er myndband við nýju útgáfuna af þessu vinsæla lagi með kylfingnum Eyjólfi Kristjánssyni og sannkölluðu landsliði tónlistarfólks, þar sem leikgleðin er í fyrirrúmi! – Til að sjá SMELLIÐ HÉR:
Hér má einnig skyggnast á bak við tjöldin við gerð myndbandsins – Sjá með því að SMELLA HÉR:
Heimild: golf.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
