Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2015 | 00:01

Afmæliskylfingur dagsins: Silja Rún Gunnlaugsdóttir – 20. janúar 2015

Það er Silja Rún Gunnlaugsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Silja Rún er fædd 20. janúar 1974 og á því 41 árs afmæli í dag!!!

Silja Rún Gunnlaugsdóttir í sveiflu á Hvaleyrinni. Mynd: Í einkaeigu

Silja Rún er Hafnfirðingur, systir Bjarna Þórs og Kristínar Fjólu og svilkona Rannveigar Sig.  Hún er gift Friðrik Sturlusyni og eiga þau 2 syni. Komast má á facebooksíðu Silju Rún til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Silja Rún Gunnlaugsdóttir (41 árs)

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Tom Carter, 20. janúar 1968 (47 ára); Peter Hedblom, 20. janúar 1970 (45 ára); Fredrik Anderson Hed, 20. janúar 1972 (43 árs); Derek Fathauer, 20. janúar 1986 (28 ára)…. og ……

Konráð V. Þorsteinsson    (42 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is