Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2015 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Lindy Duncan (13/45)

Það voru 6 stúlkur sem deildu 28.-33. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014.

Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á  LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída.

Ein þessara 6 var bandaríska stúlkan Lindy Duncan .

Lindy Duncan  fæddist 16. janúar 1991 og er því nýorðin 24 ára.

Hún byrjaði í  golfi 9 ára og segir pabba sinn hafa haft mest áhrif á golfferil sinn.

Áhugamál Lindy er að hlusta á tónlist, horfa á kvikmyndir og ……sofa!

Lindy útskrifaðist frá Duke med gráðu i sálfræði 2013 og spilaði 4 ár í  bandaríska háskólagolfinu.

Hún komst á LPGA í fyrstu tilraun sinni í fyrra, 2014 en átti erfitt nýliðaár og varð því að taka þátt í Q-school að nýju og er nú aðeins með takmarkaðan spilarétt á LPGA.