Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2015 | 11:30

GM: Golfferð Golfklúbbs Mosfellsbæjar

Vetrarstarf Golfklúbbs Mosfellsbæjar er komið í gang og núna bætist við glæsileg golfferð í sólina. Golfklúbbur Mosfellsbæjar stendur fyrir hópferð félagsmanna til Portúgals í apríl næstkomandi. Ferðin er vikuferð til Morgado sem er 36 holu golfparadís. Mikil eftirspurn hefir verið eftir miðum í ferðina.

Mikið fjör og mikið gaman verður í ferðinni og nóg um að vera fyrir alla kylfinga. Gist verður á glæsilegu 4* hóteli við vellina. VITAgolf mun standa fyrir golfmótum og viðburðum. Við hvetjum áhugasama að skrá sig í ferðina sem fyrst – takmarkað framboð!

Verð: 179.800 kr. á mann í tvíbýli og 189.900 kr. á mann í einbýli.

Gestir úr öðrum golfklúbbum eru hjartanlega velkomnir með ef einhver vill bjóða góðum vini í frábæra golfferð!

Nánari upplýsingar um Morgado eru á heimasíðu SMELLIÐ HÉR: