Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2015 | 14:30

Golfútbúnaður: Footjoy Hyperflex golfskórinn

FootJoy hefir nú kynnt nýja HyperFlex golf skóinn. Skv. FootJoy, veitir skórinn léttan stuðning jafnvel fyrir þá sem spila á æðsta stigi golfíþróttarinnar.

„Hönnuðir okkar hafa gert rannsóknir í verk- og formfræði til þess að hanna og skapa það sem gerir HyperFlex ólíkan öðrum skóm, en þeir þættir eru grundvallaratriði í endingu hans,“ sagði Dough Robinson, varaforseti alþjóðadeildar hönnunar og þróunar hjá FootJoy. „Gætt hefir verið að sérhverju smáatriði skósins, og fer saman einstök verkmennska og nýjungargirni í því sem orðið er að ótrúlega sveigjanlegum og léttum, en þó stöðugum skóm, sem veita undirstöðu sveiflu.“

EINKENNI OG KOSTIR

• FlexGrid 2.0 exoskeleton upper: Þetta er efnið sem notað er í Hyperflex golfskóinn.  Mjúkt efnið aðstoðar við stjórn á fætinum í sveiflu og heldur lögun sinni en býður þó upp á hámarks þægindi, öndun, sveigjanleika og útloftun. Efnið er vatnshelt og ábyrgð á því í 2 ár. Þessi partur af skónum var hannaður með innblæstri frá  Bunker HIll Bridge í Boston.  Snúrur brúarinnar veita stuðning en viðhalda jafnframt tæknilegu útliti. Það sama gildir um skóinn.

• FineTunedFoam 2.0: Svo heitir næsta kynslóð mið-sóla sem er hannaður með  mýkri og léttari EVA blöndu.

• O.P.S.: Hægt er að sjá þetta aftan á skónum en þetta er stutt fyrir Optimized Performance Stabilizer sem veitir stuðning og stjórn við hælinn.

• N.E.O.: Þetta er líka skammstöfun; nú fyrir: Next Evolutionary Outer sole þ.e. ytri sóla sem búinn er  ‘Tornado’ tökkum frá SoftSpikes, en sólinn hefir verið hannaður með þunnu TPU sem veitir sveigjanleika og endingu í viðnáminu undir fætinum.

PGA Tour atvinnukylfingurinn Hunter Mahan sem er á samningi hjá FootJoy hefir m.a. sagt um nýja FootJoy HyperFlex skóinn: Ég hef verið mikill aðdáandi Hyperflex allt síðan að ég fór í þá í fyrsta sinn fyrir Ryder Cup. Þægindin þegar ég er á golfvellinum saman með stöðugleikanum þegar ég sveifla er frábær. Ég virkilega nýt þess að vera í þessum skóm og mér líkar líka við framúrstefnulegan, oddhvassan stíl (hræðileg þýðing á edgy style) þeirra.“

Nýi HyperFlex skórinn er fáanlegur þann 15. febrúar í Bandaríkjunum í 4 litum: dökkbláum/skærgrænum; hvítum/gráum og bláum; svörtum og gráum/appelsínugulum. Grænn/limegrænn verður þó ekki fáanlegur fyrr en 15. mars og er aðeins framleiddur í takmörkuðu upplagi.

Viðmiðunarverð á skónum er $ 190 út golfbúð í Bandaríkjunum u.þ.b. 25.000 íslenskar krónur.

Þrjú afbrigði nýja golfskósins verða fáanleg 15. apríl 2015 með BOA reimum og koma þeir í eftirfarandi litum: hvítum/gráum/bláum; gráum/appelsínugulum og svörtum/rauðum.  Þeir kosta $210 eða u.þ.b. 27.700 íslenskar krónur (miðað við gengið $1 = 132 ísl. krónur).