GÖ: Leitað að golfvallarstjóra og rekstraraðila fyrir golfskála GÖ
Golfklúbbur Öndverðarness leitar nú að golfvallarstjóra og rekstraraðila fyrir golfskálann.
Golfvallarstjóri. Leitað er að öflugum og sjálfstæðum einstaklingi sem á gott með að vinna með fólki og hefur reynslu af vallarstjórn og/eða menntun í golfvallarfræðum. Æskilegt er að viðkomandi hafi til að bera frumkvæði, hæfni til almenns viðhalds á vélum og metnað til að ná árangri í starfi.
Rekstraraðili golfskála. Leitað er að metnaðarfullum rekstraraðila fyrir golfskálann sem sér um og ber ábyrgð á veitingarekstri og þjónustu klúbbsins við golfara í maí – sept. ár hvert. Æskilegt er að viðkomandi sé matreiðslumaður og/eða hafi reynslu af veitingarekstri.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Steinþórsson formaður GÖ í síma 8965865 milli kl 12-14. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á netfangið allist@internet.is í síðasta lagi 18. janúar. Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Golfklúbbur Öndverðarness varð 40 ára á síðasta ári og er einn af stærstu og framsæknustu golfklúbbum landsins. Félagar hafa verið rúmlega 500 undanfarin ár. Öndverðarnesvöllur er 18 holur og þjónar sívaxandi sumarhúsabyggð í Grímsnesi og nærsveitum. Um 3.000 sumarhús eru innan 20 mínúta aksturfjarlægðar og einungis tekur tæpa klukkustund að aka til GÖ frá höfuðborgarsvæðinu. Golfskáli GÖ er glæsilegur með vel tækjum búið eldhús og veislusal sem tekur 140 manns í sæti.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
