Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2015 | 11:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Nina Muehl (12/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 26.-34. sætinu, allar á samtals 1 yfir pari.

Næst verða þær 7 stúlkur kynntar sem urðu í 19.-25. sætinu, allar á samtals sléttu pari, en það eru: finnsku stúlkurnar Marika Voss, Elina Numenpaa og Linda Henriksson; Lien Willems frá Belgíu; Alex Peters frá Englandi; Nina Muehl frá Austurríki og Marta Sanz frá Spáni.

Sú sem kynnt verður í dag er spænska stúlkan Nina Muehl.  Hún var á samtals sléttu pari, skorinu 360 högg (72 70 74 70 74)

Nina Muehl fæddist 17. janúar 1987 í Vín, Austurríki og er því 27 ára.  Hún er dóttir Franz og Manuelu Muehl. Nína átti glæsilegan áhugamannsferil í heimalandi sínu, Austurríki og hefir verið í golflandsliði Austurríkis frá árinu 2001, eða frá því hún var 14 ára.

Meðal hápunkta áhugamannsferilsins er að hún varð austurrískur meistari í holukeppni 2008 og varð í 2. sæti í sömu keppni 2007. Hún varð og í 13. sæti í Scottish Ladies Amateur.

Nína var í 4 ár í East Tennessee State University, sama skóla og Guðmundur Ágúst „okkar“ Kristjánsson, þar sem hún spilaði í bandaríska háskólagolfinu, með golfliði skólans og lagði stund á viðskiptafræði. Í bandaríska háskólagolfinu vann Nína til ýmissa afreka sem sjá má með því að SMELLA HÉR: Hún útskrifaðist 2011.

Nú er hún sem sagt komin á LET keppnistímabilið 2015 en þetta er 2. ár hennar á LET, hún komst einnig í gegnum lokaúrtökumótið í Marokkó 2014 og var það nýliða ár hennar á Evrópumótaröð kvenna.