Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2015: Matt Ford (24/27)
Það var enski kylfingurinn Matt Ford sem varð í 4. sæti á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona á Spáni 15.-20. nóvember 2014.
Birgir Leifur okkar Hafþórsson spilaði einnig í lokaúrtökumótinu en komst því miður ekki í gegnum niðurskurð að þessu sinni.
Matt Ford fæddist 19. apríl 1978 í Swindon, Englandi og er því 36 ára. Ford býr í dag í Maidstone.
Matt Ford er með BSc Hons gráðu í íþróttafræðum (ens. Sports Science).
Hann komst í enska landsliðið í golfi eftir að hann bætti forgjöf sína úr 2 í +3.
Matt Ford gerðist atvinnumaður 25 ára og vann m.a. PGA National Assistants Championship á fyrsta tímabili sínu sem atvinnumaður, en við það vann hann sér inn þátttökurétt á BMW PGA Championship í Wentworth golfklúbbnum á Englandi 2005.
Ford er kvæntur Suzie og á með henni börnin Teagan (f. 2009) og Oscar (f. 2011).
Ford hefir allt frá árinu 2002 reynt að komast á Evróputúrinn en það hefir aldrei tekist fyrr en á s.l. ári, 2014. Ford var búinn að ákveða að þetta væri í síðasta sinn sem hann ætlaði að reyna að komast inn á mótaröðina og var búinn að þiggja vinnu sem póstburðarmaður – ef þetta færi nú ekki allt að óskum hjá honum í þessari 10. tilraun hans ….. sem, sem betur fer tókst! Ford gat varla haldið aftur af tárunum þegar hann náði draumi sínum í nóvember á s.l. ári.
Ford hefir spilað á Áskorendamótaröð Evrópu síðan 2011 og hefir tvisvar orðið í 2. sæti í á fyrstu tveimur keppnistímabilum sínum þar.
Hann náði besta árangri sínum á peningalistanum 2013 þegar hann varð í 48. sæti.
Ford er sonur atvinnumanns í fótbolta og því hafa íþróttir verið honum sem í blóð bornar.
Meðal áhugamála Ford eru fótbolti og að horfa á kvikmyndir.
Fræðast má nánar um Matt Ford með því að skoða heimasíðuna hans, sem sjá má með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
