Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2015 | 12:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Rebecca Sörensen (5/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Byrjað verður að kynna þær 9 stúlkur sem urðu í 26.-34. sætinu; allar á  samtals 1 yfir pari, en það var skorið, sem þurfti til að komast inn á Evrópumótaröð kvenna í ár.

Fjórar fyrstu af þessum 9 stúlkum hafa þegar verið kynntar þ.e. þær Laura Murray og Heather MacRae frá Skotlandi,  Lucie André frá Frakklandi, og Melissa Eaton frá Suður-Afríku, en nú er komin röðin að sænska kylfingnum Rebeccu Sörensen en hún var samtals á skorinu 1 yfir pari, 361 höggi (75 73 68 74 71).

Rebecca spilaði á LET bæði 2013 og 2014, en í bæði skiptin eftir að hafa farið í gegnum lokaúrtökumót LET. Árið 2012 var eftirfarandi kynning skrifuð hér á Golf 1 um Rebeccu og er hún í fullu gildi enn:

Rebecca Sörensen

Ríkisfang: sænsk.

Fæðingardagur: 6. maí 1986.

Fæðingarstaður: Grabo, Svíþjóð.

Háralitur: Ljóshærð.

Augnlitur: Blár.

Gerðist atvinnumaður: 2010, en 2012 var fyrsta keppnistímabilið sem atvinnumaður

Byrjaði í golfi: 7 ára.

Áhugamál: Þykir gaman að öllum íþróttum. Spilaði boltaleiki í mörg ár en reyndi líka fyrir sér í borðtennis, frjálsum, twirling og fótbolta. Starfar sem golfleiðbeinandi. Er Öijared golfklúbbnum. Styrktaraðilar eru m.a. Derma AB og Aludden Providore.

Menntun: Sálfræðingur, frá University of Central Arkansas (UCA).

Áhugamannsferill: Vann 2 mót í háskóla og varð 16 sinnum meðal efstu 10. Varð Southland Conference kylfingur ársins, íþróttamaður nema (ens.: Student-Athlete) árið 2010, og vann á sama tíma medalist honors, sú eina í sögu Southland að hafa gert svo.

Helstu afrek á ferlinum: Spilaði á 3 mótum á  Nordea Tour og 3 mótum á LETAS árið 2012

Fylgjast má með Rebeccu á bloggsíðu hennar með því að SMELLA HÉR: