Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 30. 2014 | 12:30

Sang Moon Bae kvaddur í Kóreuher – Verður hlé á PGA Tour ferli hans?

PGA Tour ferill suður-kóreanska kylfingsins Sang-moon Bae gæti verið í hættu eftir að hinn 28 ára Bae var kvaddur í herinn og beðinn að snúa aftur heim til Kóreu.

Sang-moon Bae, sem á í beltinu 2 sigra á PGA Tour, var neitað um undanþágu frá herþjónustu skv. heimild Yonhap fréttastofunnar, sem vísaði til móður Bae.

Bae, sem er, sem stendur, nr. 84 á heimslistanum og hefir þegar unnið sér keppnisrétt á Masters risamótið í Augusta National, í apríl á næsta ári, 2015, er gert að snúa til Kóreu í árslok 2015, en geri hann það ekki á hann yfir höfði sér opinbera málshöfðun.

Allir suður-kóreanskir karlmenn á aldrinum 18-35 verða að gegna herþjóðnustu í a.m.k. 2 ár, þar sem Suður-Kórea er enn tæknilega í stríði við Norður-Kóreu, þar sem friðarsamningur milli landanna er enn óundirritaður eftir Kóreu stríðið 1950-1953.

Þeir sem skara fram úr í íþróttum hafa þó stundum komið sér hjá herþjónustu og þá hefir kóreanska stjórnin veitt undanþágu frá skylduheræfingum fyrir þá íþróttamenn sem vinna gull á Asíuleikunum eða Ólympíuleikunum.

Sang-moon, sigraði á the Frys.com Open s.l. október og er hæst rankaði suður-kóreanski kylfingur heims og gert er ráð fyrir að hann taki þátt í Ólympíuleikunum í Ríó 2016 þegar golfið snýr aftur sem keppnisgrein.

Sang-moon, sem einnig hefir sigrað á Asíutúrnum, japanska PGA túrnum og OneAsia Tour  komst á PGA Tour 2012 og hlaut dvalarrétt í Bandaríkjunum á grundvelli þess í 2 ár; en dvalarleyfi hans rennur út ekki á morgun heldur hinn.