GÖ: Aðalsteinn Steinþórsson nýr formaður
Aðalfundur Golfklúbbs Öndverðarness var haldinn 18. desember. Fundurinn var vel sóttur en tæplega 70 félagar mættu á aðalfundinn. Formaður GSÍ Haukur Örn Birgisson mætti á fundinn. Óskaði hann klúbbnum til hamingju með 40 ára afmælið og sæmdi nokkra félaga heiðursmerki GSÍ fyrir áratuga sjálfboðastarf og vel unnin störf í þágu klúbbsins og golfhreyfingarinnar. Silfurmerki GSÍ hlutu Guðmundur E. Hallsteinsson og Knútur Kristinsson. Gullmerki GSÍ hlutu Hafdís Helgadóttir, Einar Einarsson og Örn Karlsson.
Guðmundur E. Hallsteinsson, formaður klúbbsins s.l. 7 ár og varaformaður áður í 3 ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Klúbburinn hefur dafnað og vaxið undir hans stjórn og þökkuðu félagar honum með lófaklappi og húrrahrópum. Ennfremur gáfu Knútur Kristinsson og Ragnar Guðmundsson ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Nýja stjórn skipa. Aðalsteinn Steinþórsson formaður, Guðjón Snæbjörnsson, Guðlaug Þorgeirsdóttir, Hannes Björnsson og Knútur Hauksson. Í varastjórn eru Þórhalla Arnardóttir og Þórir Baldvin Björgvinsson.
Veðrið síðasta sumar setti strik í reikninga klúbbsins og varð tekjusamdráttur milli ára, bæði af mótum og vallargjöldum. Þrátt fyrir það tókst fráfarandi stjórn að skila 1 milljón króna rekstrarafgangi.
Fundurinn samþykkti að hækka árgjöld klúbbsins um 5% og verða þau innheimt með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
