Nýju stúlkurnar á LET 2015: Heather MacRae (3/34)
Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.
Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.
Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.
Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.
Byrjað verður að kynna þær 9 stúlkur sem urðu í 26.-34. sætinu; allar á samtals 1 yfir pari, en það var skorið, sem þurfti til að komast inn á Evrópumótaröð kvenna í ár.
Tvær fyrstu af þessum 9 stúlkum hafa þegar verið kynntar þ.e. þær Laura Murray frá Skotlandi og Lucie André frá Frakklandi, en nú er komin röðin að kylfingnum Heather MacRae en hún var samtals á skorinu 1 yfir pari, 361 höggi (73 75 71 67 75).
Heather MacRae er fædd 23. september 1983 í Stirling, Skotlandi og er því 31 árs. Hún byrjaði að spila golf 10 ára. Pabbi hennar fór með Heather og bróður hennar á golfvöllinn frá unga aldri og Heather spilaði golf með bróður sínum og vinum hans.
MacRae var síðan í bandaríska háskólagolfinu; spilaði golf með skólaliði San Diego State, þaðan sem hún útskrifaðist með gráðu í stjórnsýslufræðum (ens.: Public Administration) árið 2008. Sjá má helstu afrek MacRae í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR:
Sama ár gerðist MacRae síðan atvinnumaður í golfi þ.e. 2008.
MacRae hefir m.a. spilað á LET Access mótaröðinni þ.e. í 2. deild Evrópumótarðar kvenna.
Hér má sjá ágætis kynningu LET Access á Heather MacRae SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
