Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2014 | 07:00

LET: Ólafía Þórunn og Valdís Þóra komust ekki gegnum fyrri niðurskurð lokaúrtökumótsins

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL komust ekki í gegnum fyrri niðurskurð lokaúrtökumótsins Lalla Aicha Tour School í Marokkó.

Þátttakendur voru 133 og komust 60 efstu í gegnum fyrri niðurskurð eftir 4 leikna hringi og fá að spila lokahringinn þ.e. 5. hringinn, sem fram fer í dag, en það er í rauninni úrslitin um hvaða 30 fá kortin sín á Evrópumótaröð kvenna.

Ólafía Þórunn lék á samtals 11 yfir pari, 299 höggum (73 74 77 75) og lauk keppni í 89. sæti.

Valdís Þóra lék á samtals 12 yfir pari, 300 höggum (76 76 76 72) og átti besta hring sinn á 4. degi í mótinu; lék á sléttu pari. Valdís Þóra varð í 95. sætinu.

Til þess að vera meðal 60 efstu hefðu þær Ólafía Þórunn og Valdís Þóra þurft að vera á 6 yfir pari eða spila 6-7 höggum betur en þær gerðu.

Fyrir að komast inn á lokaúrtökumótið hljóta þær þó báðar spilarétt á LET Access mótaröðinni

Efst í mótinu er enski bílprófslausi, Benz eigandinn, 18 ára, Georgia Hall á samtals 14 undir pari (67 68 69 70).

Sjá má úrslitin eftir fyrri niðurskurð lokaúrtökumóts LET með því að SMELLA HÉR: