Afmæliskylfingar dagsins: Marín Rún Jónsdóttir og Thorbjørn Olesen – 21. desember 2014
Afmæliskylfingar dagsins eru Marín Rún Jónsdóttir og danski kylfingurinn Thorbjørn Olesen.
Marín Rún er fædd 21. desember 1954 og á því stórafmæli í dag!!! Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið hér að neðan
Thorbjørn er fæddur í Furesø, Danmörku 21. desember 1989 og á hann því 25 ára afmæli í dag. Hann gerðist atvinnumaður, 2008, aðeins 18 ára. Hann varð í 4. sæti strax á 1. keppnistímabili sínu á Nordea mótaröðinni, 2009, þar sem hann vann 3 mót og fékk þar með kortið sitt á Áskorendamótaröð Evrópu 2010. Það sumar, í júlí 2010, vann hann fyrsta mót sitt á Áskorendamótaröðinni, The Princess, sem haldið var í Svíþjóð. Hann varð nr. 3 á stigalista Áskorendamótaraðarinnar og hlaut þar með kortið sitt á Evrópumótaröðinni, 2011.
Í desember 2010 varð Olesen í 2. sæti á Alfred Dunhill Championship, fyrsta mótinu á 2011 keppnistímbili Evróputúrsins. Í júní 2011 varð Olesen T-2 á BMW Italian Open í Tórínó, mestmegnis vegna glæsihringjar upp á 62 högg á lokahringnum, en Robert Rock átti samt 1 högg á hann og vann mótið. Næsta mánuð varð Olesen enn í 2. sæti á Alstom Open de France þegar hann fékk skolla á lokaholuna og varð aftur 1 höggi á eftir þeim sem vann, sem í það skiptið var Thomas Levet. Með þessum góða árangri ávann Olesen sér þátttökurétt á Opna breska 2011, en þar náði hann ekki að komast í gegnum niðurskurð.
Þann 1. apríl 2012 vann Olesen fyrsta og eins sigur sinn til þessa á Evrópumótaröðinni á Opna sikileyska, átti 1 högg á Chris Wood, en við það tækifæri sagði hann m.a. aðspurður um hvernig tilfinningin væri: „Hún er frábær, ég var þrívegis í 2. sæti í fyrra, þannig að það ná fyrsta sigrinum er æðislegt.“
Á þessu ári, 2013, ber hæst að Olesen tók þátt í the Masters risamótinu í fyrsta sinn á ferli sínum og varð T-6 þ.e. deildi 6. sætinu með öðrum, en það er besti árangur hans í risamótum. Fyrir þennan góða árangur hlaut Olesen tímabundinn spilarétt á mótum PGA Tour. Einnig lék Olesen í Seve Trophy í sigurliði meginlandsins. Loks mætti geta þess að Olesen er á ábatasömum auglýsingasamningi við Nike.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Walter Hagen, 21. desember 1892; Kel Nagle (Ástrali) 21. desember 1920 (94 ára); Christy O’Connor, 21. desember 1924 (90 ára stórafmæli!!!); Karrie Webb, 21. desember 1974 (40 ára stórafmæli!!!); Simon Dyson, 21. desember 1977 (37 ára);
….. og ……
Gísli Sváfnisson (61 árs)
Ásdís Olsen (51 árs)
Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024



