Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2014 | 21:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2015: Joakim Lagergren (12/27)

Sænski kylfingurinn Joakim Lagergren varð í 16. sæti á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina, sem fram fór á PGA Catalunya, í Girona á Spáni og lauk 20. nóvember s.l.

Lagergren er því aftur kominn með kortið sitt á Evrópumótaröðina

Joakim Lagergren fæddist 15. nóvember 1991 og er því 23 ára. Hann  á sama afmælisdag og ekki ófrægari kylfingar og Lorena Ochoa og Ottó „okkar“ Sigurðsson. Joakim byrjaði að spila golf 6 ára þegar stjúpfaðir hans, Ola Eliasson, varð fjölskyldumeðlimur. Hann hlaut innblástur með því að fylgja Eliasson eftir á golfvellinum á mótum og ákvað að hann ætlaði að verða eins og stjúpi sinn, en hann er enn þjálfari Joakim.

Lagergren gerðist atvinnumaður 2010 og byrjaði ferilinn í the Nordic League. Með þremur sigrum á þeirri mótaröð ávann hann sér kortið sitt á Áskorendamótaröðinni 2011 og hann varð 86. á stigalistanum, en besta frammistaða hans var í Norwegian Challenge, þar sem hann landaði 6. sætinu. Hann vann undanúrtökumótið í Q-school á El Valle Golf Resort, áður en hann tók 12. kortið á lokaúrtökumótinu í Girona 2011. Í ár varð Joakim aftur að fara í Q-school, en stóð sig lakar en í fyrra skiptið, endaði sem áður segir í 20. sæti.

Áhugamál Joakim fyrir utan golfið er tónlist en hann er mikill aðdáanda sænsku hljómsveitarinnar Swedish House Mafia.