LET: Amy Boulden nýliði ársins
Það var Amy Boulden frá Wales, 21 árs, sem varð nýliði ársins á Evrópumótaröðinni árið 2014.
Boulden tókst að verða T-24 á Omega Dubai Ladies Masters og þar með gulltryggði hún sér titilinn „nýliði ársins á Evrópumótaröð kvenna“ gagnvart helstu samkeppni hennar; þ.e. skosku stúlkunni Sally Watson og Nicole Broch Larsen frá Danmörku.
Fyrir vikið hlaut Boulden forláta demantsarmbandsúr frá Omega.
„Þetta hefir verið virkilega frábært fyrsta keppnistímabil á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour, skammst.: LET),” sagði Boulden ánægð, en hún sigraði m.a. á Association Suisse de Golf Ladies Open á LET Access s.l. maí
Boulden var einn af þeim kylfingum sem gekk hvað best á LET í ár, en hún varð 4 sinnum meðal efstu 10 í mótum sem hún spilaði í þ.á.m. náði hún 2. sætinu í Lacoste Ladies Open de France.
Hún varð í 3. sæti á the Sberbank Golf Masters í Tékklandi, í 4. sætinu á Ladies German Open presented by Marriott og í 10. sæti á Tenerife Open de España Femenino.
Á keppnistímabilinu vann Boulden sér inn €83,982.17, og varð þar með í 18. sætinu á peningalistanum, 5 sætum ofar en helsti keppninauturinn Watson.
„Það var eitt af markmiðum mínum þegar ég varð atvinnumaður í golfi að verða nýliði ársins. Ég hélt samt að það yrði erfitt þetta árið þar sem ég var ekki með fullan spilarétt. Ég var ekki viss um í hversu mörgum mótum ég yrði að spila, en það hjálpaði að byrja árið vel. Það er virkilegur heiður að vinna þennan heiðurstitil og komast meðal þeirra sem unnið hann kvenna á borð við Lauru Davies, Anniku Sörenstam og Charley Hull.„
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
