Greg Chalmers sigraði á PGA Australian Masters e.bráðabana við Scott og Ormsby
Nr. 3 á heimslistanum, Adam Scott var í sigurvænlegri stöðu fyrir lokahringinn í gær á PGA Australian Masters, en í dag átti hann fyrsta hring sinn yfir 70 þ.e. lék lokahringinn á 71 höggi og það dugði til þess að þeir Greg Chalmers, sem átti afburðadag, þar sem hann lék á 64 glæsihöggum og Wade Ormsby jöfnuðu við hann.
Það varð að koma til bráðabana milli þeirra þriggja þar sem þeir voru allir jafnir að loknum 72 hefðbundnum spiluðum holum; þ.e. allir á 11 undir pari, 277 höggum; Adam Scott (68 69 69 71); Greg Chalmers (71 71 71 64) og Wade Ormsby (68 67 71 71).
Bráðabaninn var æsispennandi. Ormsby datt út eftir 3 spilaðar holur þegar hann var á pari, en Chalmers og Scott fengu fugla. Bráðabaninn hélt því áfram milli Chalmers og Scott og fór á 7. holu bráðabana þar sem Chalmers vann með pari meðan Scott fékk skolla.
Adam Scott tókst því heldur ekki að verja titil sinn á PGA Australian Masters nú í ár, en Greg Chalmers stóð uppi sem sigurvegari.
Í 4. sæti varð Ástralinn Michael Hendry (á samtals 9 undir pari); í 5. sæti varð Bandaríkjamaðurinn Scott Stallings ( á samtals 8 undir pari) og í 6. sæti varð Boo Weekley ( á samtals 7 undir pari). Matt Giles og Scott Strange deildu síðan 7. sætinu (á samtals 6 undir pari, hvor).
Til þess að sjá lokastöðuna á PGA Australian Masters SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
