Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 11. 2014 | 16:30

Valdís Þóra komin áfram á lokaúrtökumótið

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, er komin áfram á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina og er þetta í fyrsta skipti sem tveir íslenskir kvenkylfingar spila samtímis á lokaúrtökumóti um að komast á Evrópumótaröð kvenna, en Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, var áður búin að tryggja sér sæti á lokaúrtökumótinu.

Valdís Þóra lék samtals á 14 yfir pari, 306 höggum (76 73 77 80).

Hún varð í 8.-10. sæti í úrtökumótinu en alls komust 42 keppendur af 78 áfram á lokaúrtökumótið, sem fer fram síðar í mánuðnum 17.-21. desember 2014.

Glæsilegur árangur og glæsilegur kylfingur þar sem Valdísi Þóra er!!!

Til þess að sjá lokastöðuna á úrtökumótinu SMELLIÐ HÉR: