Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2014 | 10:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2015: Borja Virto Astudillo (9/27)

Spænski kylfingurinn Borja Virto varð i 19. sæti af þeim 27 sem hlutu fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni keppnistímabilið 2014-2015. á lokaúrtökumótinu í Girona, á Spáni, 20. nóvember s.l.

Borja Virto er fæddur 4. febrúar 1991 á Pamplona á Spáni og er því 23 ára.

Hann byrjaði sterkt þegar hann gerðist atvinnumaður 2013, varð í 4. sæti á peningalista Alps Tour og tryggði sér þannig síðasta sætið á Áskorendamótaröðinni áður en hann komst í gegnum 2. stigið á Q-school og vann sér þannig inn kortið sitt á Evrópumótaröðinni.

Virto hefir átt glæsilegan feril sem áhugamaður og hefir verið í golflandsliði Spánverja frá 12 ára aldri alla leið upp til 18 ára aldurs þegar hann sigraði á  the Spanish Amateur Under-18 championship árið 2009.

Virto var í bandaríska háskólagolfinu en hann stundaði nám í  Iowa State University, en hann átti í vandræðum með leik sinn þar og nýja menningu þannig að hann sneeri heim til Spánar og þar blómstraði golfleikur hans aftur.

Virto er mikill vinur Adrian Otaegui en hann spilar líka á Evróputúrnum, en þeir hafa spilað saman frá því þeir voru pínulitlir að alast upp á Norður-Spáni.

Virto segir að fyrirmynd sín sé Sergio Garcia og að sig hlakki til að kynnast honum á túrnum.

Meðal áhugamála Virto er að horfa á kvikmyndir með kærustunni og vera á skíðum.

Sem stendur er Borja Virto nr. 1549 á heimslistanum.