Haukur Örn Birgisson. President of the Icelandic Golf Union. Photo: golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Ágúst Ársælsson og Haukur Örn Birgisson – 3. desember 2014

Það er forseti GSÍ, Haukur Örn Birgisson, sem er annar afmæliskylfinga dagsins.  Haukur Örn er fæddur 3. desember 1978 og því 36 ára í dag. Hann er með 3,9 í forgjöf og félagi í Golfklúbbnum Oddi og aukaaðild í Golfklúbbi Flúða.  Hann tók m.a. þátt í Íslandsmótinu í höggleik s.l. sumar og er það í fyrsta sinn sem forseti GSÍ tekur þátt á mótaröð þeirra bestu.  Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Hauk Örn með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu forsetans til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Haukur Örn Birgisson  (36 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Hinn afmæliskylfingurinn í dag er Ágúst Ársælsson en hann er fæddur 3. desember 1974 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!!  Ágúst er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og er oft sigurvegari opinna móta.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Hörður Vilhjálmur Sigmarsson, 3. desember 1953, GK (61 árs); David Diaz, 3. desember 1967 (47 ára);    Victor Jean Hugo, 3. desember 1975 (39 ára); Angelo Que, 3. desember 1978 (36 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is