Bjarki Pétursson, GB. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Bjarki Pétursson —- 2. desember 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Bjarki Pétursson. Bjarki er fæddur 2. desember 1994 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Bjarki er afrekskylfingur í Golfklúbbi Borgarness (GB) og hefir m.a. orðið klúbbmeistari GB 5 sinnum í röð!!!

Bjarki var m.a. valinn efnilegasti kylfingur Íslands á lokahófi GSÍ, 10. september 2011. Árið 2011 tók Bjarki þátt  í Duke of York mótinu á Hoylake vellinum hjá Royal Liverpool klúbbnum og náði 16. sæti, sem er góður árangur í ljósi þess að veðrið var að leika keppendur grátt alla dagana. Árið 2011 var Bjarka gott en hann varð Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára pilta bæði í holukeppni og höggleik og m.a. kjörinn Íþróttamaður Borgarfjarðar á Íþróttahátíð UMSB í kjölfarið; hann var síðan valinn íþróttamaður Borgarness 3. árið í röð,  árið 2013.

Árið 2012 spilaði Bjarki bæði á Unglingamótaröð Arion banka og á Eimskipsmótaröðinni og það sama er að segja árið 2013; hann lék bæði á Íslandsbankamótaröðinni og Eimskipsmótaröðinni.   Árið 2012 vann Bjarki 1. mótið á Unglingamótaröðinni uppi á Skaga, sem og 3. mótið í Korpunni.

Bjarki hefir spilað á mótum erlendis í ár m.a. tók hann þátt í Finnish Amateur Championship 2012 og 2013.

Þá er eftirminnilegt þegar Bjarki varð í verðlaunasæti (3. sæti) í einstaklingskeppninni á European Boys Challenge Trophy, sem fram fór í St. Sofia Golf & Spa, í Búlgaríu en mótið fór fram dagana 20.-22. september 2012.

Frá árinu 2013 er eftirminnilegt þegar Bjarki fór  holu í höggi á 15. braut Islantilla á Spáni, 13. apríl 2013. Eins vann hann nokkur opin mót t.a.m. Opna Nettó mótið á heimavelli sínum Hamarsvelli og sömuleiðis Opna Icelandair Hotels mótið í júlí 2013.

Það sem gerðist markvert í lífi Bjarka í ár, 2014, er að hann útskrifaðist frá Menntaskólanum í Borgarnesi. Bjarki mun á næsta ári spila í bandaríska háskólagolfinu í Ohio.  Hann spilaði á Eimskipsmótaröðinni s.l. sumar og náði m.a. eftirminnilegum glæsierni þar á 15. braut á 5. mótinu, Goðamótinu á Jaðarsvelli.  Eins tók Bjarki þátt í Einvíginu á Nesinu.

Sjá má eldra viðtal, sem Golf1 tók við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu Bjarka til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Bjarki Peturson (20 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  John Matthew Shippen, Jr., (f. 2. desember 1879 – d. 20. maí 1968); Jenny Lee Smith, 2. desember 1948 (66 ára);  Jay Haas, 2. desember 1953 (61 árs); Alexander Čejka, 2. desember 1970 (44 ára);  Marco Ruiz, 2. desember 1974 (40 ára stórafmæli!!!);   ….. og ……

Logi Bergmann (48 ára)
Ölver Jónsson (44 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is