Jason Gore
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2014 | 10:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Jason Gore (41/50)

Eiginlega ætti Zac Blair að vera næstur í röðinni af þeim, sem tekinn er til umfjöllunar hér í kynningu á „nýju strákunum á PGA Tour 2014-2015″, því hann varð í 11. sæti á Web.com Tour Finals og því sá 11. til að hljóta kortið sitt á PGA Tour af 50 sem það hlutu nú fyrr í ár.

Málið er bara að Golf 1 er þegar búið að kynna Blair vegna þess að hann, líkt og Tony Finau, sem báðir eru frá Salt Lake City í Utah, hafa báðir slegið í gegn af nýju strákunum og var meðal þeirra fyrstu sem var kynntur – Sjá með því að SMELLA HÉR:

Sá sem kynntur verður í dag er því sá 10. til að hljóta kortið sitt af 50, en það er Jason Gore.

Jason Gore fæddist í Van Nuys, Kaliforníu, 17. maí 1974 og er því 40 ára.  Hann  var fyrst í the University of Arizona áður en hann flutti sig um set í  Pepperdine University. Meðan Gore var í Pepperdine, var hann hluti af  NCAA Division I Championship liði skólans 1997. Gore spilaði líka í sigurliði Bandaríkjanna í Walker Cup það árið.

Gore gerðist atvinnumaður í golfi árið 1997. Hann var kominn á  PGA Tour eftir að hafa spilað á undanfara Web.com Tour þ.e.  Nationwide Tour  um miðbik ársins 2005 eftir að hafa hlotið það sem á ensku nefnist „a battlefield promotion“, sem gæti útlagst á eitthvað í áttina að „vígvallarstöðuhækkun“ sem er veitt þeim kylfingi, sem sigrað hefir 3 sinnum á sama keppnistímabili á  Nationwide Tour (nú Web.com Tour) Gore er með einn sigur á PGA Tour í beltinu, en hann sigraði á  84 Lumber Classic árið 2005 og er sá kylfingur sem sigrað hefir oftast í sögu Nationwide Tour og  Web.com Tour, þ.e. hefir sigrað 7 sinnum á þeirri mótaröð.

Gore var í lokaráshópnum 2005 á Opna bandaríska rismótinu ásamt Retief Goosen.  Hann var á 14 yfir pari, 84 höggum og féll alla leið niður í 48. sæti og Michael Campell vann mótið. Gore var ekki með full keppnisréttindi á PGA tour 2009-2014, en er nú loks komin með full keppnisréttindi.

Gore býr í dag í  Valencia, Kaliforníu ásamt konu sinni , Megan, syni, Jaxon og dóttur,  Olivíu.