Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 25. 2014 | 14:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2015: Lasse Jensen (4/27)

Lasse Jensen var annar af tveimur Dönum sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröðina fyrir keppnistímabilið 2013 í gegnum lokaúrtökumót European Tour, sem fram fór á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona á Spáni, 24.-29. nóvember 2012.  Reyndar sluppu dönsku kylfingarnir báðir rétt inn, en Lasse varð í neðsta sæti því 24. á lokaúrtökumótinu og hinn, Morten Örum Madsen, varð í 16. sæti.

Nú í ár, á lokaúrtökumótinu sem lauk 20. nóvember 2014 í Girona, á Spáni rétt slapp Jensen aftur inn, varð í 24. sætinu og var að þessu sinni eini Daninn sem komst á Evrópumótaröðina í gegnum lokaúrtökumótið.

Lasse er fæddur í Hilleröd, Danmörku 6. september 1984 og er því nýorðinn 30 ára. Hann á því sama afmælisdag og Ragnhildur „okkar“ Kristinsdóttir í GR. Lasse býr enn í Hilleröd og er þar í Assebo golfklúbbnum. Lasse gerðist atvinnumaður í golfi 2003 og hefir á hverju ári síðan tekið þátt í Q-school Evrópumótaraðarinnar.

Lasse spilaði á  Áskorendamótaröðinni 2012 og varð í 28. sæti á stigalistanum.

Hann er sem stendur nr. 463 á heimslistanum.

Meðal áhugamála Lasse eru bílar, fjármál, líkamsrækt og íþróttir almennt.

Til þess að fræðast meira um Lasse Jensen má skoða heimasíðu hans með því að SMELLA HÉR: