GK: Stjórnarbreytingar – Ingveldur og Pálmi gefa ekki kost á sér aftur í stjórn
Á aðalfundi Keilis 9. desember nk. liggur fyrir að kjósa þurfi tvo nýja stjórnarmenn.
Þau Ingveldur Ingvarsdóttir og J. Pálmi Hinriksson hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Ingveldur hefur verið í stjórn frá árinu 2009 lengst af sem formaður kvennanefndar en kvennastarf GK hefur verið í miklum blóma. Nú síðasta ár sinnti Ingveldur hlutverki ritara.
Pálmi var kjörin í stjórn á aðalfundi 2001 og hefur verið gjaldkeri Keilis frá árinu 2004. Pálmi hefur sinnt hlutverki sínu einstaklega vel og stýrði fjármálum Keilis í gegnum erfiða tíma með mikilli festu. Ber að þakka honum sérstaklega það óeigingjarna starf.
Ingveldur og Pálmi þakka stjórn, starfsmönnum og félagsmönnum fyrir afar ánægjulegt samstarf.
Stjórn GK vill þakka Pálma og Ingveldi sérstaklega fyrir þeirra framlag.
Stjórn GK hvetur jafnframt áhugasama félagsmenn til að bjóða sig fram í stjórn, hafi þeir áhuga á að sinna þeim fjölmörgu verkefnum sem framundan eru.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
