Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2014 | 12:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Blayne Barber (36/50)

Blayne Barber var nr. 16 af 50 til þess að hljóta kortið sitt á PGA Tour keppnistímabilið 2014-2015.

Blayne Barber fæddist 25. desember 1989 í Tallahassee, Flórída og er því 25 ára (líkt og Rory McIlroy og Rickie Fowler).

Hann spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði  University of Central Florida (USF) og Auburn University.

Í UCF var Barber All-American nýliða ár sitt. Eftir að Barber flutti sig um set í  Auburn háskóla varð Barber  three-time All-American og vann einstaklingskeppni í einu móti.  Hann sigraði einnig í Florida State Amateur árið 2009 og spilaði í 2011 og 2012 Palmer Cup og árið 2011 í Walker Cup.

Barber gerðist atvinnumaður í golfi árið 2012. Hann hefir frá þeim tíma spilað á  Web.com Tour. Hann sigraði í fyrsta móti sínu nú í ár, 2014, þ.e. South Georgia Classic og varð í 16. sæti Web.com Tour Finals og vann þannig inn kortið sitt eins og áður segir.

Árið 2012 þegar Barber var í lokaúrtökumóti fyrir PGA Tour dró Barber sjálfan sig úr móti fyrir að skila inn röngu skorkorti.

Til þess að fræðast nánar um Barber má t.a.m. skoða vefsíðu hans – sjá með því að SMELLA HÉR: