Dustin Johnson (DJ) Dustin Johnson seldi Flórída heimili sitt fyrir $ 5.2 milljónir – snýr aftur til keppni snemma í febrúar 2015
Það fækkar einum kylfingnum sem lifir útúrsnúningi úr „hipp life“ þ.e. „JupLife“ niðri í Suður-Flórída (Jup Life er stytting yfir lífstíl þeirra, sem búa í Jupiter, Flórída og eru nægilega ríkir til að geta spilað golf öllum tímum).
Skv. L.A. Times seldi PGA Tour kylfingurinn Dustin Johnson (DJ) heimili sitt í Jupiter, Flórída, fyrir $5.2 milljónir.
Húsið var byggt árið 2007 og er 7,860 ferfeta með 6 svefnherbergjum og 8 baðherbergjum – og auðvitað því sem fylgir „Jup Life“ þ.e. púttflöt, sundlaug og einkahöfn fyrir snekkju.
Sagt er að Johnson hafi keypt eignina á sínum tíma á $3.7 milljónir.
Hann var búinn að setja $6.5 milljónir á hana, en sætti sig við $5.2 milljónir út í hönd, en hann seldi eignina Alexandre Ismail, sem er forseti og framkvæmdastjóri Honeywell Automation and Control Solutions.
Johnson hefir verið í fríi frá PGA Tour frá því í júlí til þess að ná tökum á einkalífi sínu, m.a. vegna meintrar eiturlyfjaneyslu sinnar, eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Frá þeim tíma hafa m.a. fréttir borist af því að lögmenn hans hafi dregið að sér fé í eigu DJ, sem og að hann og kærasta hans, Paulina Gretzky eigi von á sínu fyrsta barni í ársbyrjun 2015.
Jafnframt upplýsti Tim Rosaforte, fréttamaður Golf Channel nú fyrr í þessari viku að Johnson muni snúa sér aftur að keppnisgolfi í byrjun febrúar á næsta ári, þ.e. á Farmers Insurance Open.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
