Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Kristján Bjarnar Þórarinsson og Ingvi Rúnar Einarsson ———- 19. nóvember 2014

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Kristján Bjarnar Þórarinssson og Ingvi Rúnar Einarsson.

Kristján Bjarnar er fæddur 19. nóvember 1944 og á því 70 ára merkisafmæli í dag.  Komast má á facebook síðu Kristjáns hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið

Ingvi Rúnar er fæddur 19. nóvember 1937 og á því 77 ára afmæli í dag. Ingvi Rúnar er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og heldur úti samfélagssíðunni Kylfingar á Facebook. Ingvi Rúnar spilar mikið golf, gjarnan erlendis í golfferðum á ýmsum freistandi golfáfangastöðum og jafnt sumars sem um miðjan vetur á Íslandi. Eins er hann mjög góður púttari og hefir tekið þátt í mörgum púttmótum Golfklúbbsins Keilis, með góðum árangri.  Ingvi Rúnar er jafnframt stofnandi golfklúbbsins Hraunborga Sjá með því að SMELLA HÉR: 

Ingvi Rúnar er kvæntur, á 3 börn og fjölda barnabarna.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Ingvi Rúnar

Ingvi Rúnar

Ingvi Rúnar Einarsson (77 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Azahara Muñoz 19. nóvember 1987 (27 ára);  Kyle Stanley, 19. nóvember 1987 (27 ára)           ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is