Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2014 | 11:00

GVS: Vinnukvöld á morgun og hinn

Ákveðið hefur verið að koma saman og klára að einangra og klæða verkfæra og æfingaaðstöðuna næstkomandi miðviku og fimmtudagskvöld 19. og 20. nóvember

Vallarstjóri verður á svæðinu frá kl 17.00 og verður unnið svo lengi sem menn nenna :)

Verður farið í að klæða loft með vindpappa, smella glerull í og plasta svo yfir.

Allir sem áhuga hafa á því að mæta, geta sent e-mail á gvsgolf@gmail.com.

Ef einhver lumar á loft-heftibyssu þá væri þannig græja vel þegin.